föstudagur, mars 20, 2009

Gin og Safi

Jójójó moðerfokkers. Var að hlusta á hinn stórfenglega rappara Snoop Dogg auk þess sem ég var að dást að myndböndunum hans á youtube. En allir sem eitthvað vita um músík vita það að platan Doggystyle markaði djúp spor í tónlistarsöguna. Ég verð reyndar að viðurkenna það að ég hlustaði ekki mikið á hann, var meira að stúdera Iron Maiden og Manowar á þeim tíma sem Doggystyle kom út og þrátt fyrir mikla þversku af minni hálfu á þeim dögum þá gat þessi plata ekki farið fram hjá mér, enda voru Hlynur og Ómar Dennis "the homies in the hood" á þeim tíma og hlustuðu þeim mikið á rappmúsík og oftar en ekki glumdi þetta í hverfinu. Ég neita því ekki að oftar en einu sinni lét ég kaupa fyrir mig Colt 45 bjórinn og drakk ég hann úr bréfpoka....en það var meira svona til að vera fyndinn....og ég var fyndinn.
Eeeeeeen allavega, ég hef lengi átt í fórum mínum lag, lag með Snoop, í flutningi hljómsveitarinnar Phish......í suðurríkja sveitatónlistar útsetningu. Jebb, algjör snilld. Gjörið svo vel, upprunalega útgáfan með Snoop fylgir með líka og hún er sko hreint ekki síðri.





Jónki

laugardagur, desember 13, 2008

Kínversk Demókrasía

Jæja.....keypti nýja Guns´n Roses diskinn á dögunum. Miðað við það að gerð hans sé búin að spanna tvær aldir og eitt "milleníum" þá er hann ekkert svakalegur. En hann er samt alls ekki lélegur, hann er skrambi góður, enda ekki við öðru að búast þegar fengið er snillinga eins og Buckethead á gítarinn og Brain á trommur, tveir sérfræðingar sem hafa verið í slagtogi með hinum mikla Les Claypool, það hefði eflaust ýtt plötunni á annað og allsérkennilegt plan ef Axl Rose hefði fengið Les Claypool með sér líka....SÆLL!!!
En þetta er ekki Guns´n Roses nema að nafninu til, þetta er bara sólóplata sérvitrings sem selur eflaust helmingi fleiri eintök bara út á nafnið. Ég hefði allavegana ekkert verið svakalega spenntur fyrir því að kaupa sólóplötu með Axl Rose, ekki frekar en sólóplötu með Slash....minnir að sú fyrsta hafi heitið snakebite....fannst hún ekkert spes. En....svona sálfræði virkar á mig.
En það eru mörg mjög góð lög þarna, hún er meira að segja helvíti grúví á köflum og það er mjög gaman að hlusta á Buckethead glamra á þennan gítar sinn....hann er reyndar alveg að halda þessari plötu uppi. Lag 8 er samt eitt það glataðasta sem ég hef heyrt lengi....byrjar á einhverri bjánalegri fjölröddun eingöngu með Axl gólandi fölsku tennurnar úr sér. Sama hvað Buckethead shreddar gítarinn....það er ekki hægt að minnka aulahrollinn.
Þetta er samt skyldueign....eingöngu út af nafninu og löngum fæðingartíma.

Jon

fimmtudagur, nóvember 27, 2008

log: 27. Nóvember 2008, staðartími: 16:39

Það er snjóstormur úti, kolbrjálað veður, sést ekki á milli ljósastauranna, fáir eru á ferli.

Ég er farinn út í skóg.

Jón Hafliði

mánudagur, nóvember 17, 2008

Afsakið orðbragðið en......

Þvílík djöfulsins andskotans snilld!!!!! Ég hélt að ég ætlaði að skíta á mig úr hlátri þegar ég rifjaði þetta meistarastykki upp. Meistarinn hefur elst vel.




Scatman John

mánudagur, nóvember 03, 2008

Asnalegar aðstæður.

Lenti í undarlegri stöðu á dögunum. Ég fór ásamt Huldu á vídjóleiguna hérna á Egilsstöðum til þess að leigja vídjó og hugsanlega kaupa eilítið snarl. Nú var það þannig að hún Hulda var svo elskuleg að sjá um það að splæsa í þetta skiptið, en það má gera þegar fólk er orðið gift. Svo fór að við ákváðum að leigja The Incredible Hulk (sem er n.b. helvíti góð).
Þá rann upp stundin, asnalegu aðstæðurnar sem fengu mig til þess að verða hálf kjánalegan, fór að glápa upp í loftið og í kringum mig og þykjast hafa áhuga á einhverjum gömlum veggspjöldum nokkrum metrum frá okkur. Því að þegar kom að því að borga fyrir myndina þá bað Hulda mig vinsamlegast að geyma fyrir sig bragðarefinn meðan hún borgaði myndina.
Svona leit þetta út: -Hulda borgaði myndina
-Myndin er "The Incredible Hulk"
-Ég stóð fyrir aftan Huldu eins og lítill krakki
-Ég var að gúffa í mig bleikum bragðaref eins og lítil stelpa

Það er gott að vera giftur.

Jón Hafliði

sunnudagur, október 12, 2008

Kjöthleifur og mótorhjól sem hverfa.


Hvað er eiginlega málið?





Engu að síður meistaraverk!

Fiskbúðingur

mánudagur, júní 23, 2008

The fantastic sheep

Ég öskraði eins og smástelpa þegar ég var á rúntinum á þjóðvegi 1 um daginn. Ég sá í fjallshlíðinni hóp af hvítum dýrum og var bara alveg handviss um að þarna væri komin ísbjarnahjörð.
Ég var komin með símann í lúkurnar og búin að á sambandi við 112 þegar ég sá þegar betur var að gáð að þetta voru bara nokkrar rollur. Jahh hvað á maður að segja, maður veit aldrei...ha? Gætu þetta ekki verið ísbirnir?

Jón....móðursjúkur